Farsæld barna - samþætting þjónustu

Á Íslandi hafa ný  lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna (nr. 86/2021) tekið gildi. Þessi lög varða öll börn og ungmenni á Íslandi frá 0 - 18 ára aldurs. Meginmarkmið laganna er að búa til umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Strax við fæðingu barns, eða eftir atvikum á meðgöngu, eiga foreldrar og börn rétt á þjónustu tengiliðar eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu þjónustu á fysta stigi í samræmi við óskir foreldra og eða barns. Tengiliður er einstaklingur í nærumhverfi barnsins:

Tengiliðir Brekkubæjarskóla eru eftirfarandi: 

  • Arndís Ósk Valdimarsdóttir er tengiliður í 1. og 2. bekk, netfang arndis@brak.is .
  • Rósa María Sigurgeirsdóttir er tengiliður í 3., 4. og 5. bekk, netfang rosa.maria@brak.is
  • Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir er tengiliður í 6., 7. og 8. bekk, netfang vilborg.thorunn@brak.is .
  • Brynhildur Benediktsdóttir er tengiliður í 9. og 10. bekk, netfang brynhildur@brak.is .

Hér er hægt að óska eftir samtali við tengilið farsældar. 

Hér eru upplýsingar um farsæld barna á Akranesi.