Bókamessan hefst á þriðjudaginn kemur, 10. janúar með lestrarstundinni Allir lesa kl.
8.20-8.40.
Eins og áður eru markmið Bókamessunnar einkum tvö: Að hvetja til aukins
lesturs nemenda og ýta undir jákvæð viðhorf til bóka og lesturs.
Á stundinni Allir lesa sameinast allur skólinn - nemendur og starfsfólk í lestri og við opnum dyr okkar fyrir gestum svo fjölskyldur nemenda eru hjartanlega velkomnar í skólann með bók í hönd.
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brak.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 12:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brak.is.