Hjóladagurinn fór fram hjá nemendum á yngsta stigi Brekkubæjarskóla í annað sinn þann 11. maí síðastliðinn.
Nemendur í 1.-4. bekk mættu á hjólum og æfðu sig að hjóla eftir hjólabraut sem sett var upp á skólalóðinni. Þar gátu þau æft sikk sakk, halda jafnvægi á hjóli, hjóla undir og færa hluti með annarri hendinni á milli borða á meðan þau hjóluðu. Nemendur gátu líka þrifið hjólin sín á hjólaþvottastöð sem sett var upp.
Unglingarnir okkar buðu þeim svo að koma í hjólaskoðun þar sem þau skoðuðu hvort allt væri í lagi með hjólin þeirra og ef eitthvað vantaði uppá þá fengu þau blað með sér í vasan heim þar sem krossað var í það sem bætti betur fara.
Lögreglan kom í heimsókn og fylgdist með flottu krökkunum okkar í hjólabrautinni, kíkti á miðann þeirra og gaf þeim skoðunarlímmiða á hjólið. Lögreglan spjallaði líka við alla nemendur yngsta stigs á sal skólans þar sem farið var yfir umferðarreglurnar með þeim og hætturnar sem þau þurfa að vara sig á.
Allir hlustuðu af athygli og spurningaflóðið í lokin lýsti því hversu áhugasöm þau voru um það sem lögreglan hafði að segja.
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brak.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 12:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brak.is.