Þriðjudaginn 9. maí kom Ósk Kristinsdóttir starfsmaður Landverndar í heimsókn í Brekkubæjarskóla. Ósk vinnur hjá Landvernd sem sérfræðingur Skóla á grænni grein og var komin til okkar til að veita nemendum í 4.-9. bekk fræðslu um Grænfánaverkefnið. Einn liður í því að flagga Grænfánanum er að nemendur myndi umhverfisnefnd sem starfar samhliða umhverfisnefnd starfsfólks. Ósk kynnti þetta verkefni vel fyrir nemendum og vakti neista hjá ansi mörgum. Nemendur á mið-og unglingastigi munu sitja í umhverfisnefnd nemenda. Fyrir skólalok verður nefndin skipuð og mun taka til starfa á nýju skólaári.
Við hlökkum mikið til þessa samstarfs við áhugasama nemendur um umhverfismál og þökkum Ósk kærlega fyrir komuna.
Myndir af kynningunni má sjá hér
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brak.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 12:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brak.is.