Umsóknarfrestur á Frístund er til 21.ágúst!

Foreldrar barna í 1. - 4. bekk athugið:
Mönnun á frístundaheimilum fer eftir fjölda barna. Til að tryggja öruggt pláss á frístundaheimili frá og með 26. ágúst 2024, hvort sem er í Brekkuseli (1. og 2.bekkur) eða Krakkadal (3. og 4.bekkur) þarf að vera búið að senda inn umsókn í síðasta lagi 21.ágúst 2024.
 
Öll börn munu fá pláss en ekki er hægt að lofa plássi strax í upphafi skólagöngu ef umsókn hefur borist eftir 21.ágúst
Hér er hægt að sækja um pláss á frístundaheimilin.