Endurnýjuð kennslurými opna

Þó enn sé töluvert í land með að öllum framkvæmdum ljúki í skólanum erum við samt farin að nota aftur rými sem hafa verið lokuð í langan tíma. Íþróttahúsið opnaði aftur s.l. föstudag eftir árslanga lokun og er mikil gleði með það meðal kennara og nemenda. Einnig er byrjað að kenna í endurnýjaðri og glæsilegri heimilisfræðistofunni og bakstursilmurinn farinn að berast um ganga skólans, ungum sem öldnum til mikillar ánægju 🙂
Nokkrar myndir úr heimilisfræði og íþróttum má sjá með því að smella á hlekkinn.
https://photos.app.goo.gl/vZGuYGktkgj1GRDT7