Fræðslufundur fyrir nemendaráð

Í síðustu viku var haldinn fræðslufundur fyrir nemendaráð Brekkubæjarskóla og Grundaskóla í Þorpinu. Þar fengu nemendafulltrúarnir fræðslu um hvað fælist í því að sitja í nemendaráði og hvaða hlutverki það gegnir við að koma á framfæri skoðunum grunnskólanemenda. Einnig fór fram undirbúningur fyrir Barnaþing sem verður haldið í byrjun október.

Nemendafulltrúarnir skiluðu frábærri vinnu og greinilegt að unglingarnir hafa margar hugmyndir um hvernig þeir vilja sjá skóla- og frístundastarf á Akranesi þróast. Að sjálfsögðu var líka brugðið á leik til að hrista hópinn saman.

Myndir frá fræðslufundinum má sjá hér.