Haustskólinn

Haustskóli tilvonandi 1.bekkinga var núna í vikunni. Þá komu skólahópar af leikskólum bæjarins og prófuðu að vera grunnskólakrakkar í 3 daga hjá okkur í Brekkó. Núverandi 1.bekkingar fengu á móti að fara í heimsókn á sína gömlu leikskóla en höfðu einnig það hlutverk að vera gestgjafar fyrir tilvonandi skólasystkini sín.
Það var ýmislegt brallað í haustskólanum og mikið líf og fjör í kringum þessa kátu haustskólakrakka eins og sést hér í meðfylgjandi myndasafni 🙂