Morgunstund 16.október

Fyrsta morgunstund vetrarins var haldin í íþróttahúsinu miðvikudaginn 16.október. Þetta var fyrsta morgunstundin sem haldin var í sal íþróttahússins eftir endurbætur, en síðasta vetur voru þær haldnar í fimleikahúsinu. Í þetta sinn var því miður ekki hægt að bjóða gestum á áhorfendapallana en það verður vonandi hægt að fylla pallana af fólki á jólamorgunstundinni í desember. 

Að vanda var mikið um tónlist og söng og stigu fjölmargir nemendur á svið ásamt því að sinna tæknimálum. Myndir má sjá með því að smella hér.