Í gær fór fram undankeppni fyrir lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi. Allir nemendur í 7. bekk hafa æft upplestur af kappi undanfarnar vikur og í gær lásu 16 þeirra upp texta í bundnu og óbundnu máli fyrir sérstaka dómnefnd og áheyrendur úr 6. og 7. bekk. Öll stóðu sig með mikilli prýði en dómnefndin fékk það erfiða verkefni að velja þau 6 sem þóttu standa sig best í upplestrinum til að koma fram á lokahátíðinni sem fer fram þann 13. mars næstkomand í Tónbergi. Það voru þau Erna Kristín, Bryndís Lilja, Davíð Antti, Anna Lea, Erlingur Orri og Talía Björk sem þóttu standa sig best meðal jafningja og munu stíga á stokk á lokahátíðinni fyrir hönd Brekkubæjarskóla.
Í meðfylgjandi myndasafni má sjá myndir frá upplestrinum í gær.
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brak.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 12:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brak.is.