Í morgun fór fram undankeppni fyrir Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi sem fer fram í Tónbergi 10. mars. Allir nemendur 7. bekkjar hafa æft upplestur af miklu kappi frá því í haust og tekið miklum framförum í þeirri list að stíga í pontu og lesa upp fyrir framan áheyrendur. Eftir strangar æfingar voru 16 bestu lesararnir valdir úr hópnum og þeir reyndu með sér í morgun í salnum. Krakkarnir lásu upp texta í bundnu og óbundnu máli og úr hópnum voru svo valdir þeir 6 sem þóttu standa sig best meðal jafningja. Þau munu mæta í Tónberg ásamt 6 bestu lesurum Grundaskóla og lesa þar upp fyrir gesti í sal.
Þau sem voru valin til að fara í Tónberg eru:
Til hamingju krakkar - vel gert!
Vesturgötu 120 | 300 Akranes Sími á skrifstofu: 433 1300 Netfang: skrifstofa@brak.is |
Opnunartími skrifstofu: Föstudaga 07:45 - 12:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda berist í gegnum Mentor eða síma 433 1300 / skrifstofa@brak.is.